
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
Uppbygging Krækjubanka kennarans
Krækjubanki kennarans sem nú er að verða sæmilega mótaður er hugsaður sem vinnusparandi efnisbanki í enskukennslu fyrir nemendur sem eru að byrja í grunnskólanum.
Aðalnámsskrá grunnskóla frá 1999 reiknar ekki með að kennsla erlendra tungumála byrji fyrr en í 5. bekk og því er ekki til námsefni í ensku fyrir þetta ung börn. Reikna þarf með að kunnátta nemenda í lestri sé ekki mikil við upphaf skólagöngu og því þarf efni að vera þannig úr garði gert að þetta ung börn geti lært tungumálið án þess að þurfa að lesa það. Þetta er hægt að gera með tölvuefni, myndum og tali, en texti þarf að vera lítill og léttur.
Í Krækjubanka kennarans er að finna efni sem er valið miðað við þarfir þetta ungra barna. Eftirfarandi atriði voru höfð í huga við skoðun efnis á Netinu:
Þegar meta á kennsluefni fyrir börn er nauðsynlegt að hafa eitthvað viðmið og eru eftirfarandi punktar það sem ég hef gengið út frá við uppsetningu vefsins:
Er uppsetning áhugaverð fyrir börn?
Er efnið fræðandi, skemmtilegt og/eða áhugavert?
Eru myndir einfaldar, líflegar, í góðum litum?
Er talsetning vönduð og auðheyrileg?
Er málfar vandað, á einfaldri ensku?
Er texti á einföldu máli með stóru læsilegu letri?
Er eitthvað á vefnum sem vekur ótta eða aðrar óæsilegar tilfinningar?
Er vefurinn með auglýsingum eða gylliboðum?
Tengist efni á einhvern hátt óæskilegu efni fyrir börn?
Er eitthvað sem getur sært blygðunarkennd ungra barna?
Er aðgengi að vefnum ókeypis?
Víkjum aðeins nánar að uppbyggingu vefsins:
Þemasíður:
Efni sem safnað hefur verið saman er skipt niður í 20 flokka sem sjást hér til vinstri. Ef valið efni getur fallið undir fleiri en einn flokk er það sett þannig inn. Við flokkun efnis var ákveðið að byrja á barninu sjálfu og þess nánasta umhverfi, víkka efni svo smám saman.
Kennarasíða:
"Kennarasíða" hýsir nokkrar undirsíður. Fyrst kynni ég nokkrar tegundir matsblaða sem hægt er að prenta út eða vista í eigin tölvu og fylla út þar. Matsblöð þessi eru þannig uppbyggð að bæði texta og lögun er hægt að breyta eftir því sem hver vill. Á þeim eru nákvæmar leiðbeiningar varðandi vistun og breytingar og vona ég að það hjálpi þeim sem ekki eru vanir við tölvuna, en hafa áhuga á að nýta sér efnið. Einnig er hægt að prenta blöðin út og nota þau á "gamla mátann" þ. e. handskrifa á þau.
"Krækjur vefsins" hýsir vefi sem ég hef fundið á Netinu, skoðað og litist vel á. Sumar síðurnar hef ég tekið í nákvæmt mat, en aðrar bíða úrvinnslu. Mér fannst samt rétt að setja þær inn hér líka því margir geta nýtt sér efni sem þar er.
"Krækjur annarra" hýsir krækjusöfn sem aðrir hafa safnað saman á sína vefi. Hér eins og annars staðar mun ég geta þess hvar efni ef fengið og krækja í vefinn svo aðrir geti skoðað hann betur.
SUSI og SAFT
Þessir tveir vefir fjalla um örugga Netnotkun. Þeir eru settir hér með til að minna okkur á þá miklu ábyrgð sem við fullorðna fólkið höfum. Það er okkar að vernda börnin okkar gegn óæskilegu efni á Netinu. Verum meðvituð um hvað börnin eru að gera við tölvuna.
Sagan á bak við Krækjubanka kennarans er hér
Ég bið alla þá sem finna gott og vandað efni á Netinu að smella á póstinn mínn hér fyrir neðan og senda mér upplýsingar. Með því móti stækkar og dafnar þetta kríli og verður vonandi gildur sjóður góðra tenginga fyrr en varir.
Ég á mér þann draum að með tímanum verði þessi Krækjubanki stór og digur sjóður af efni sem hægt er að sækja í á fljótlegan hátt. Enska efnið sem er fyrsti hluti Krækjubankans verður vonandi bara ein grein vefsins þegar fram líða stundir.
Það skal tekið sérstaklega fram að allt það efni sem sett hefur verið í Krækjubanka kennarans er búið til af öðrum en mér og er eign höfunda sinna. Mitt verk er leit, skoðun, mat og uppsetning Krækjubankans. Ég hef valið efni sem mér finnst henta vel í enskukennslunni en aðrir notendur vefsins finna jafnvel enn betra efni við nánari leit.
![]()
Krækjubanki kennarans
Enska fyrir byrjendur